ertu i grininu eða
08.06.2007 12:10:42 / 1973

ja herna, bara mætt

bara að lata ykkur vita að tölvan min hrundi, svo eg byrja fljotlega aftur að bl0gga.

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 13:46:22 / 1973

Gleðilega hátíð

´Sæl elskurnar og gleðilega hátíð, nú ég vildi bara láta ykkur vita að ég er frekar sein i jolunum þetta arið að eg var enn að skrifa jólakortin á þorláksmessu:$ svo þau ´ttu að koma i hús vonandi fyrir nytt ár:haha:

Þetta er eg svona i hnotskurn, ekki mikið að stressa mig á hlutunum, þetta kemur allt með heita vatninu:lol:  Eg er að vinna nuna og er nu ekki mikið að gera.

jólin voru bara yndisleg i allastaði, pabbi,mamma og maja voru hja okkur á aðfangakvöld og var gæs og svin á boðstolnum;) Og gæsin var bara geggjuð:D

verð að afgreiða kem inn síðar og afsakið þetta með letina

                              LETISVEINN


» 12 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 11:28:56 / 1973

Uff hvað maður er ekki að standa sig

Sæl elsku lesendur, sorry að eg kalla ykkur endur hehehe. Þa' er nu barasta allt fínt að fretta af okkur, eg ætla mer nu alltaf að skrifa en er bara svo löt loks þegar börnin eru sofnuð að eg nenni ekki miklu, þau eru nu frekar aktív hja mer og sja til að mamma þeirra sytji ekki auðum höndum:D

Elmar Darri fór í rör og teknir nefkirtlar í síðustu viku og að sjálfsögðu er hann búinn að vera veikur síðan, fór á pensilin og er það nu ekki mikið að virka á hann nuna, óttarlegur lasarus þessi yndislingur, nu svo er soldið síðan að hann fór að labba og finnst mer hann svo litill arkandi um allt:D

Eygló er voða dugleg i skólanum, og er að fyla vel að vera i  gæslu eftir skola, en þau eru nu ekki mj0g hlíðinn þessar elskur, en eg geri mitt besta en gengur hægt að ala þau:D

er i vinnunni og verð að hætta nuna


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 10:42:44 / 1973

SORRY SORRy

ÞVI MIÐUR BILAÐI  SKJARINN HJA MER  OG ÆTLA EG AÐ reyna AРLAGA HANN I KV=LD: 

» 12 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 09:28:01 / 1973

Bloggari ársins, eða?????????????????????

Komið nu sæl elskurnar, ætla nu bara að lata vita að eg er á lífi og mun koma með nytt blogg inn i kvold:lol:.   Þanga til kveð eg að sinni

» 13 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 22:39:58 / 1973

ju ju bara aktiv nuna.

 

 

Hellú elsku lesendur

Já mín áhvað að vera bara aktív og rita nokkrar línur, og það i wordpad svo allt detti nú ekki út eins og síðast, það er bara pirrrrrrrandi :(

Helgin var nú bara sú fínasta, til að byrja með þá var þetta frí helgi hja mer á Eika mmmmmmm ljúft, Við hjónin áhvaðum að skella okkur í partei hja honum Gumma og var það nú bara gaman, en það var nú ekki jafn mikið fjör að vakna daginn eftir :( Seisei var nu bara þokkalega þunn og með þennan þvílika hausverk, en ekkert svo slæmt að TREO lagi það ekki :)

Sá á síðunni hja mágkonu minni að það var verið að tala um túrverki og sumir ætla að halda ærlega upp á það þegar þær hætta þessum fjanda, mikið er eg sammala, en ef það væri i boði að láta fjarlægja legið þegar maður væri ahveðin að eiga ekki fleiri börn, þá sæti ég ekki her að rita, nei nei ég væri nuna upp á lansa að lata rífa legið úr, ÉG HATA BLÆÐINGAR....... vona að þið sofið betur með þessa vitneskju :)

Her eru allir orðnir hressir, Elmar aparass er orðinn hress og farinn að bæta við orðaforðann :) Guðni Már er alveg farinn að hjóla á tvíhjólinu sínu og bætir við frekjuna á hverjum degi alveg eins og systir hans, enda er alveg öruggt að ef super nanny kæmi heim til mín þá yrði ekki gerð önnur sería, hehehe svo segir Guðni bróðir :)

Ohhhh hvað kemur góður angi af lekanum , var sko að hella mer uppá, drekk alltof mikið kaffi, hinkrið ætla að á mer i svona 11,3 dropa:) komin aftur,snögg að þessu.

Uff hvað það styttist í jól, og ég segi á hverju einasta ári, næst ætla ég að byrja að kaupa gjafir i feb-mars, og geri eg það? fljótsvarað NEI. enda alltaf á 23 des að kaupa allt, stórfurðulegur ávani :/

Áður en þetta fer út i meira rugl hja mer, þá segi ég, eigið góðar nætur elskurnar og guð geymi ykkur, astala vista þessi i legnams fyling.

 

 


» 19 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 02:07:29 / 1973

NEI EKKI DJÓKA Í MÉR

Ég var búin að skrifa þessi heil ósköp og viti menn, það datt allt út:^)  já ég veit, skrifa i word og gera svo paste, en það geta ekki allir verið fullkomnir eða?

Þegar ég er í glasi, á það stundum til að setja glas á hendina á mér,þá er ég í glasi,:lol: aulahumor, en allavegna þá er Bjöggi stórvinur minn Halldórsson i ágætu uppáhaldi, en nu er eg hlessa, það kostar 8000kr á singerið hja honum, HALLÓ hvaða bull er það 16000 fyrir hjón og þá á eftir að hanga á barnum það sem af lýður kvöldi, og ekki er það fríkeypis, ég segi nú bara Bjöggi bolla, ekki svona mikla græðgi:S

Elmar Darri varð 1 árs á mánudaginn var og fórum við bara i vöfflur og klatta til mömmu, hann er hvort eð er ekki kominn með vit á afmælisveislu, sem er gott mál:)

Gummi frændi bauð okkur i smá gaim annað kvöld og erum við hjónin að spá í að skellaokkur, enda hef eg ekki fengið mer i glas að ég held síðan Ómar Ragnarsson var að taka upp STYKLU þættina:)

Her eru allir hressir nema Elmar Darri, er komin á 4 pencilin skammtinn síðan í júní, alltaf að fá sykingu í nasagöngin, og ljótan hósta, svo hann þarf líka að vera á asmapústi:( en hann er að skána, þessi skonsu rass minn:) 

jæja þar sem ég er aftur svona mikill snilli að skrifa beint en ekki i word, þá ætla eg að láta þetta duga að sinni, og elsku mágkona, takk fyrir opj í kvöld, hef tröllatrú á þessu :)

Og þið hin sem nennið að lesa þetta bull hja mér, eigið góðar nætur elskurnar og muna að kvitta :) 

over end out  Maggi nærsýni


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 22:55:51 / 1973

SNILLI SNILLI SNILLI

Já vil bara koma því á framfæri hvað eg er mikill snilli, tölvan hja okkur var eitthvað vangefin svo ég opnaði hana og að sjalfsögðu gat ég gert við hana :) húrra húrra húrra fyrir mér. hehehe

Nú hér eru allir hressir og svaka kátir þó ekki katir á sænska vísu :)

ég er bara búin að vera að vinna mikið undafarið og verið heima með börnum og manni. Hann átti einmitt afmæli þessi elska 2 sept,

ég er svo yndisleg eiginkona, gaf honum pening og sagði honum að kaupa ser afmælisgjöf, og hann hlyddi og fór i bæinn, eg er með svo gott uppeldi á þeim öllum eða öfugt :)))

Mamma er búin að bjarga mer helling, Eygló er enn ekki komin með inn í gæslu eftir skóla, svo mamma nær i hana og er með hana og Elmar Darra þar til eg er buin að vinna um 3. En þessa viku er Ómar á kvöldvakt svo hun er í fríi á daginn en eg er að vinna 3 kvöld í þessari viku svo hún kemur og passar á meðan, takk elsku mamma og pabbi fyrir alla hjálpina.

Úffff hvað ég var aktív í dag, ég þvoði 2 velar, skuraði ibúðina, og margt fleira en eg held að her framleiðist þvottur, það virðist allavega aldrei taka enda að þvo :( mer þætti allavega ekki leiðinlegt ef það væri þvotta a´lfur til sem stæli þvotti hehehe

Eygló finnst ekkert voða gaman i skólanum, hun segir að þau þurfi að hliða svo mikið, hahaha sagði mer að hun vildi bara vera áfram á leikskola svo hun gæti bara leikið ser allan daginn, og svo endaði hun á að spyrja hvað hun ætti mörg ár eftir í skóla og þegar ég sagði að skólagangan væri 10 ár, þá var henni allri lokið hehehe

Hei ég var líka voða dugleg að ganga frá fötum af Elmari Darra sem eru of lítil, sem sagt föt nr:50 og uppúr, framtakseminn að drepa mann á þessu heimili, enda ekki kölluð Anna aktíva fyrir ekki neitt :)

Nóg komið af bulli í mér í bili, og Inga mín hlakka til að fá þig í heimsókn, alltaf velkomin i leka og hnoðninga ( kaffi og kleinur) hja mer, enda er eg alltaf heima, voða heimakær enda komin för í parketið þar sem við förum ekki mikið ut.

Kiss kiss til ykkar sem þetta lesið.

speede gonsales.  

p.s  góða skemmtun i paris elsku gussi og frænka


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 16:57:00 / 1973

KOMIN HEIM

Hallo öll sem eitt, þá er maður komin heim :) Ferðin var hin fínasta, fengum nu ekki mikla sól ennnnnhita fengum við og rigningu. Húsið sem við leigðum var hrein snilld, ekki amalegt það. Nu það var nu einhver geitunga ráðstefna

þarna i garðinum og var allt krökt af geitungum og lentu Eygló og Elmar Darri fyrir barðinu á þeim felögum, en við hin sluppum, ekki það að daginn sem við komum þá fundum við ekki strax hvar husið var og fórum á bóndagarð til að inna eftir uppl, á meðan Ómar fékk leiðbeiningar fór ég út úr bílnum og fekk mer sígo, nema hvað að um leið og ég stíg út úr bílnum komu 2 geitungar og

flögruðu þarna í kringum mig, og eg eins og geðsjuk manneskja baðaði ut höndum og hljop um eins og belja á vori, svo er mer nu litið upp, stendur þá gamall maður og ég er að segja ykkur hann hefur haldið að það væri gjörsamlega eitthvað mikið að mer, eg for eitthvað að reyna utskyra en hætti því fljott, þar sem maðurinn var enn i losti eftir þessa uppá komu í mér.

Eygló fór í fyrsta sinn i skólann í dag, og fannst henni svaka fjör, það er ekkert smá gott að eiga heima við hliðina á skólanum, tekur 1 min fyrir hana að labba heim :) En hún er enn ekki komin með pláss í frístundarheimilinu, þar sem eg er að vinna til 3 og hun buin 1, þá ætlar hun yndislega móðir mín að vera með hana eftir skóla, þar til hun fær pláss. Það er eins og hun se að fa PLÁSS á kleppi

Ja það var sko mikið gert í svíþjóð, Verslaði nu ekkert svakalega, en allt á Eygló fyrir veturinn og strákana enda getur maður alveg eins verslað her heima, nema ef maður verslar i H&M. það er nu yfirleitt ódyrt.

Nú aldrei þessu vant tók ég fullt af myndum en kann ekki að setja þær inn á blöggið hja mér :(

Eygló var brúðamær hjá mónu og var hun svaka flott, brúðkaupið var hið fínasta og komu allir heilir ur þeirri veislu.

Jæja er að fara að vinna á Eika ( nei ekki þannig, sora hugsanir alltaf í ykkur) svo ég læt þetta duga í bili----------------

knús til ykkar allra, FLUGNAVINURINN


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 23:29:27 / 1973

Nú er bara skollinn á águst :)

Kvöldið elskurnar, jú jú nú styttist í að maður fari til uglanda, Eygló svaka spennt :) Við foreldrarnir erum ansi kvíðinn að fara mrð þau í flug þar sem yngsta barnið á erfitt með að vera kjurr og sá eldri ekkert skárri :) Eygló verður nu örugglega fín, en hun spáir mikið í hvort hun verði flugveik :)

Maja syss bara flutt af landi brott :( á eftir að sakna hennar mikið, eg talaði við þær mæðgur í dag og er gott í þeim hljóðið :)

Leikskólinn byrjaði í gær hjö barnen eftir 4 vikna sumarfrí og allir her ánægðir með það, nema Elmar Darra sem finnst hundfult þegarvið förum, hann er loks farinn að dunda ser við að skríða, enda kominn tími á það þar sem hann er að verða 11mánaða, var farinn að halda að ég þyrfti að vera með hann á handleeg  þegar hann færi í fermingafræðslu. Neibb hann áhvað nú bara að láta til skara skríða :) mömmu sinni til mikillar ánægju.

Sorry en loks þegar maður gefur sér tíma þá að sjálfsögðu vaknar litli belgur, svo eg hef þetta stutt í bili.

kiss kiss  letihaugurinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 00:01:22 / 1973

forvitnin drap köttinn en letin hmmmmmm

Nei sæl og bless, ég er ju hér enn þótt lítið sé skrifað :) Já ég kom nú sjálfri mér á óvart síðastliðinn fimmtudag, jú jú haldið þið að ég hafi ekki bara keypt mér landakort og skellt mér á Stokkseyri :) börnin og mamma voru með í för :) Á leið minni austur var á vegi mínum lítið hús með bensíndælum, einmitt það sem mig vantaði, bensín og þar sem maður greinilega fer ekki mikið út úr bænum gerði eg mer ekki grein fyrir bensíneyðslu, nú þá var þetta litla hús Litla kaffistofan sem fólk hefur talað um, ansi huggó :) ég pylsaði börnin upp og svo var haldið á vit ævintyranna Stokkseyri með leiðsögn kortsins :) Ég hélt að húsfreyjan á Strönd fengi áfall er hún sá okkur, því ég held hún hafi frekar búist við Dorit og Ólafi en mér og mínum hehehe. Sátum hjá henni dágóðastund í góðuyfirlæti, kaffi og meðþví.. Þúsund þakkir fyrir okkur elskan:) Komum einnig við á Selfossi og Hveragerði, alveg ótrúlegt hvað það er fínt að skoða sig svona um :)

Maja syss kom frá Mallorca í dag, svaka brún og sæt :) Guðni Már minn var svona líka himinlifandi að fá frænkuna sína aftur, að hann knúsaði hana fram og til baka :) En því miður staldrar hun stutt við, þar sem hún fer til Dana veldis eftir viku :( buhhhhhuuuuuu. og ætlar daman sér að vera þar í 2 ár. En ég ætla að vera dugleg að heimsækja hana :)

Nú þá er ég loks búin með herbergið hans Guðna M, Maja syss teiknaði fyrir mig bangsímon og félaga í fullri stærð á vegginn hjá honum, og það er ekkert smá flott, og þar sem eg er svo drífandi þá er málunin á fígúrunum búin að taka soldið langan tíma hjá mer, en ég hafði það markmið að hann kæmist í herbergið fyrir fermingu og það hafðist:) jeiiii

Eygló er orðin geggjað spennt að vera að fara til útlanda, en skilur ekki alveg afhverju við förum ekki til spánar eins og allir hinir :/ Því þeir sem við þekkjum og eru að fara út eru flestir að fara til spánar, hahaha hún er svo fyndin stundum.

Hann Elmar Darri er aftur kominn með sykingu og var settur á pensílin í 3 sinn :( Þetta ætlar að vera eitthvað þrálátt hjá honum, en það á að tekka betur á nefgöngunum hja honum því þau eru frekar þröng, en nef læknirinn sem eg fór til sagði að það yrði ekkert hægt að gera fyrir nebbann fyrr en það væri búið að koma í veg fyrir allar sykingar, og sagði hann í fyrstalagi eftir 6 mán :(

Nú að öllu öðru leyti eru allir hressir hér, við Ómar erum að byrja að vinna aftur á mánudaginn kemur :( alltaf fúlt að vera búin í fríi, en við förum aftur í frí 16 águst - 29, svo það er gott að hugsa til þess að við förum aftur í frí eftir 3 vikur. mmmmmmmmm En krakkarnir eiga þá viku eftir í sumarfríi, svo yndislegu foreldrar mínir ætla að vera með þau 3 á meðan :) Takk takk Fyrir það :))))

Nú held ég að allir séu komnir með bauga af að lesa hjá mér, þar sem þetta er orðið svo langt :/ en það eru nú komin krem við baugum svo þetta er nu ekkert stress :)) Kveð að sinni, reyni nu að vera duglegri, lofa samt engu. hehehe Breiðholtsbullan kveður að sinni. Kiss kiss


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 14:03:25 / 1973

Það er komið sumar EÐA

Sælt veri fólkið á þessum rigninga degi:lol:  Hér eru allir hressir og kátir, krakkarnir og Ómar eru buin að vera í sumarfríi þessa viku og ég í dag:)  Ætlum nu ekki að gera mikið, þar sem við förum ut í næsta mánuði. jibby.

Fór í 30 ára afmæli hjá henni mágkonu minni síðustu helgi, og eg skal segja ykkur að það var þrusustuð:haha: Ómar var því miður veikur og komst ekki með svo hann var heima með barnen á meðan frúin skemmti ser ærlega í góðra vina hópi, Boðið var upp á lamb og kjulla með tilheirandi, nu svo var rautt og hvitt, 4 teg af bjor, skot, vodki og fullt af skemmtilegu fólki:)  Svo að sjálfsögðu var spilað á gítar og sungið.  Allir fóru heim með bros á vör eftir vel heppnað afmæli. Alla vega djammaði mín fram undir morgun og fekk líka minn skerf af þynnku :)  Alltaf gaman að djamma

Nú er maja syss komin á mallorca í 26 stiga hita, ekki að maður öfundi hana EÐA?

Hvaða voða myndaskapur er þetta í þér Hafdís, er verið að baka fyrir kreppuna?

Er að vinna á Eika alla helgina svo það ma alveg vera rigning, nei DJOK, er að vona eftir sól svo hægt se að gera eitthvað með barnen:)

Hef ekkert að segja með viti núna svo góða helgi elskurnar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 00:48:12 / 1973

Gísli mættur

Daginn elsku lömbin mín, nei ég er her enn, skrapp á talnámskeið hérna í sveitinni, ma verur a geta talað vi dyin:D

Jæja, þá er Elmar Darri loks búinn að fa retta greiningu, barnið var með 3 syklategundir í nefinu, lungnabólgu,of mikinn járnskort, of hátt sökk og blóð lítill og hana nú, var kannski ny buin að vera með hann á braðavaktinni og send með hann heim án þess að þeir tækju lungnamyndir eða annað,:evil: svo ég segi bara ekki fara á bráðavakt barna. Hann var settur á syklalyf og við erum að tala um það að ég hef ekki þurft að snýta honum síðan hann var settur á þessi lyf, barnið sem er búið að vera með klósettrúllu um hálsinn síðan hann fæddist, og ekki tekið nema 9 mán að greina hann:^) halló.

Nú við hér í suðurhólum bíðum alltaf eftir að sumarið fari að koma, en nei nei ekkert skeður,  enda er ég farin að segja við Eygló að þau séu að byrja í vetrafríi 10 júlí.

Er bara búin að vera vinna og vera með karli og börnum það sem af er vetri, börnin og Ómar fara í vetrafrí 10 júl og ég þann 17, þa þykjumst við ætla að vera dugleg og kikka út ur bænum með liðið:D

Nú her eru allir hressir og kátir að vanda nema húsbóndinn sem er alveg að gefast upp á nefstyflu :klikk: sem er buin að hrja hann í 2 vikur, skrítið :S

Læt nu heyra í mér fljott aftur, þetta bara gengur ekki :$

                    kiss og knús  þessi hrut LATA


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 00:04:08 / 1973

Kveðja úr sveitinni

Góa kvöldið, þá er afdalinn mættur, já það mætti stundum halda að við höfum tekið við búinu hjá Gísla á Uppsölum þegar hann lést, því það er eins og við seum ekki nettengd, ég er svo löt að fara í tölvuna, skamm skamm:S en þið ykkar sem horfðuð á hann Morthens, váááááá hvað hann er nú alltaf góður og svaka kroppur svona á 50 ára deginum, ekki slæmt;) ég allavegna saung með og fannst þetta góðir tónleikar, vantaði meira stuð í áhorfendur.  Nú ég skellti hnakk á hestinn og reið með Elmar Darra til læknis og viti menn, loksisns fékk barnið pensilin, greinilega ny búið að finna það upp hja minum lækni, en eg er sæl og ánægð og vona að það virki á kvefið i honum:D Svo er eg að fara með hann 21 juni til hans Stefans, eyrnalækninn hans Einsa míns og vonandi finnur hann ut hvað er að hrjá barnið í nefinu;) Ég er sæl og ánægð í vinnunni, alltaf nó að gera og maður er ny kominn þegar maður fer heim, ekki slæmt það:lol:  Við fjölskyldan skelltum okkur með orf og ljá í Völvufellið á sunnudaginn og kláruðum garðinn fyrir gamla settið, svo þá er hann tilbúinn að fagna sumri, en mikið er eg fegin að vera ekki með garð upp á þetta:S maður þarf að hafa græna fingur til að hafa gaman af;)  Mest lítið að fretta nema við álpuðumst á traktornum í kaupfélagið og keyptum 1 stk hjól handa dömunni á bænum, svaka flott og á að duga henni til sirka 8 ára aldurs, ekki var nú bróðir hennar ykja hrifinn og :cry: bara í 1 tíma yfir þessu óréttlæti:(  en amma og afi bættu úr því og mætti amma bara með afmælisgjöfina hanns aðeins fyrr og barnið sprakk næstum ur gleði:D enda ekkert smá flott hjól, tvíhjól með hjálparadekkjum og ekta hjálmur með:P  svo ef einhver ætlar að prufa hjá honum þá kemur hann alltaf með hjálminn , já her sest enginn nema með hjálm:haha: Jæja nú þarf ég  að fara að mjólka og gefa hænonum svo þar til næst, kiss kiss               Anna á Uppsölum

» 9 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 00:25:40 / 1973

Loksins

Kvöldið elskurnar, Ég vil nú byrja á því að óska henni Lísu til hamingju með prinsinn litla :) Algjört yndi, hlakka til að knúsa hann :) Elmar Darri er loks kominn með 1 tönnina, ég fann hana í dag :) svo er hann farinn að klappa saman lófonum og drekka með röri, híhí mamman voða stolt, aðrir halda að eg se einhverf þar sem flest börn eru örugglega farinn að gera þetta fyrr, en sko hann er bara litla barnið og þarafleiðandi er mamman búin að aftra honum að ég held:$ en stolt mamma samt sem áður :) Ég hef ekkert seð um manninn með sögina í blaðinu hehe svo vonandi er enn einni húsmóðurinni fleiri her í breiðholti :þ en hvað var hann að saga um miðja nótt ?hellú. Var með Neðstabergs gengið í mat í gær og er alltaf jafn gaman að fá þau, Ernir hélt á Elmari Darra og spurði mig svo hvað hann væri þungur? og ég sagði rúm 8 kg, setti minn þá upp sinn meistaralega svip, 8 kg þetta er eins og að halda á sandkorni hehehehe alveg að sligast með hann haha hann er endalaust fyndinn þessi gulldrengur minn. Einsi sagði svo við mig inn í eldhúsi, ( bauð þeim í lasagnia) þið eruð voða mikið pasta fólk, sko þegar þið bjóðið okkur í mat þá er pasta, lasagnia eða hakk og spagetty í matinn og það bregst ekki,já sagði ég þegar þú segir það, þið eruð svona eins og Ása og Steini ( bjuggu við hliðina á þeim í Ugluhólum) þau eru t.d með æði fyrir hafragraut svona eins og þið með pasta :) hahahah ég átti bara bágt með mig :) það sem vellur ekki upp ur honum. Við loks drulluðumst til að mála hjónaherbergið í Völvunni og er liturinn sem frúin valdi bara geggjað flottur. Ómar og Guðni voru að taka gráðu í karate og að sjálfsögðu gekk það vel hjá þeim, til hamingju gaurar. Já ég er nú farin að gleyma hvernig hún mágkona mín lítur út, það er svo mikið að gera hja henni að ég held að það þurfi að bæta í sólahringinn fyrir hana, sá hana fyrir rumri viku síðan og var hún þá voða þreytt enda kannski ekki skrítð. Nú pabbi er nú allur að hressast sem betur fer, fór með krakkana til hans í dag og finnst þeim alltaf jafn gaman að hitta afa :) jæja nó komið að bulli í bili, hætt að lofa að bæta mig í skrifum þá kannski fer eg að vera duglegri :) EÐA? þessi aktíva í hólonum


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3